Ađalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Anna Borg
  • Stađur: Akureyri
  • Atvinna: kaffi Jónsson
  • Hjúskaparstađa: ömurleg spurning

Yfirheirslan

 Tryggð, kynlíf og ást eru mjög mikilvægir þættir í lífi steingeitar! - HVERNIG ERTU Í RÚMINU?

Steingeit(22.des - 19.jan)

- KYNLÍFSGLÖÐ Í RÚMINU -

Tryggð, kynlíf og ást eru mjög mikilvægir þættir í lífi steingeitar. Hún er rómantískur bólfélagi með gott úthald og henni líkar vel að þóknast elskhuga sínum. Satínofinn rúmfatnaður úr egypskri bómull og klórþolnum
polyesterþræði er eitthvað sem steingeitin, sem er vægast sagt mjög kynlífsglatt stjörnumerki, kýs að nota. Hún þarf ást en óttast um leið sársaukann sem hún kann að valda en þegar steingeitin elskar loksins, elskar hún ákaft og af öllu hjarta. Kynþokki hennar vex með aldrinum og sömuleiðis leikirnir sem þurfa helst að fara fram í mjúku satínklæddu rúminu.


 Bogmaðurinn er fær um að skapa skínandi stemmingu við hvaða aðstæður sem er og býr til rómantíska stund án fyrirhafnar með krafti sínum og hugsjónum! - HVERNIG ERTU Í RÚMINU?

Bogmaður(22.nóv - 21.des)

- HVETJANDI Í RÚMINU -

Bogmaðurinn er fær um að skapa skínandi stemmingu við hvaða aðstæður sem er og býr til rómantíska stund án fyrirhafnar með krafti sínum og hugsjónum. Fyrir honum er kynlíf hátíð en bómullar sængurverasett nægir bogmanni sem er einlægur kynlífsfélagi og leitar að félaga og samferðakonu sem eflir sterkt fegurðarskyn hans og virðir þörf hans fyrir stöðuga örvun í ástarsambandi. Sterkt fegurðarskyn hans gerir hann að stórkostlegum
félaga í ástarleikjum. Bogmaður er hvetjandi og drífandi ef hann fær að sofa einstaka sinnum út.


 Sporðdrekinn nær taki á elskhuga sínum með persónutöfrum sínum, dýpt og þrautseigju í rúminu en á sama tíma er hann stjórnsamur en ákaflega trygglyndur og næmari en nokkurn grunar! - HVERNIG ERTU Í RÚMINU?

Sporðdreki(24.okt - 21.nóv)

- TÖFRANDI Í RÚMINU -

Sporðdrekinn nær taki á elskhuga sínum með persónutöfrum sínum, dýpt og þrautseigju í rúminu en á sama tíma er hann stjórnsamur en ákaflega trygglyndur og næmari en nokkurn grunar. Hann er ástríðufullur elskhugi sem nýtur þess endrum og eins að eyða deginum við lestur í rúminu. Þegar sporðdrekinn er ástfanginn getur hann verið kynþokkafullur og gefandi með afbrigðum. Hann er fæddur til kynlífs og valda og það á einnig við í rúminu.Hágæða rúmföt eru sporðdrekandum vissulega að skapi því hann er kröfuharður og lostafullur og kýs að hafa umhverfið á sömu nótum.


 Voginni er illa við einveru og kýs að hafa einhvern sem getur nært hana á kynferðislega- og tilfinningasviðinu! - HVERNIG ERTU Í RÚMINU?


Vog(23.sept - 23.okt)

- UNDANLÁTSSÖM Í RÚMINU -

Elskhugi vogar verður að vera þolinmóður og skiliningsríkur og viðurkenna þörf hennar fyrir aðdáun, strokur og blíðu í rúminu. Lúxus dúnsæng er undanlátssamri voginni að skapi. Þegar vogin hefur fundið ástina er ekki aftur snúið. Í góðu ástarsambandi kýs hún að þóknast öðrum en getur líka verið ákveðin í rúminu þegar og ef hún leitast við að skilja og fullnægja fyrirmyndar elskhuga sínum. Þegar vogin finnur ástina sína er hún sátt að eilífu og leggur sig fram við að upplifa góðar stundir í rúminu. Henni er illa við hirðuleysi og vill að rúmið sé snyrtilegt og vel búið þegar það er ekki í notkun. Voginni er illa við einveru og kýs að hafa einhvern sem getur nært hana á kynferðislega- og tilfinningasviðinu.



 Það líkist töfrabrögðum svo kynþokkafull er meyjan þegar hún er innilega! - HVERNIG ERTU Í RÚMINU?

Meyja(23.ágúst - 22.sept)

- HREINLEG Í RÚMINU -

Meyjan verður að fá að sofa óáreitt fram yfir hádegi þegar hún er þreytt til að geta blómstrað í rúminu. Kröfuharkan verður nánast engin þegar hún sefur í góðu rúmi. Glæsileg rúmteppi er eitthvað sem meyjan leggur töluverða áherslu á því hún leggur mikla áherslu á fallegt umhverfi í svefnherberginu. Meyjan er einstaklega hreinleg og ástríðufull í rúminu. Það líkist töfrabrögðum svo kynþokkafull er meyjan þegar hún er innilega
ástfangin og á það við í svefni jafnt sem vöku. Meyjan álítur snertingu eðlilegan þátt í rúminu. Hún gerir ávallt miklar kröfur og væntingar hennar eru stundum óraunverulegar í leit sinni að fullkomnun.


 Tvíburanum er vel við börn og gæludýr og þarfnast þar af leiðandi stórt rúm svo öll fjölskyldan geti sofið þar á sama tíma! - HVERNIG ERTU Í RÚMINU?


Tvíburar(21.maí - 21.júní)

- DÝRAVINUR Í RÚMINU -

Tvíburinn þráir að vera elskaður af ákafa og veltast um rúmið í ástarleikjum ef plássið leyfir en tvíburinn hreinlega þolir ekki skilmála í rúminu. Hann er hamingjusamastur þegar hann elskar og nær að hvílast vel og þá er hann líka einstaklega skemmtilegur og örvandi í rúminu. Honum verður aldrei orðavant þegar elskhugi hans nennir að kjafta alla nóttina um heima og geima. Tvíburinn er heillandi elskhugi og tillitssamur svo lengi sem hans helmingur í rúminu stendur óáreittur. Tvíburanum er vel við börn og gæludýr og þarfnast þar af leiðandi stórt rúm svo öll fjölskyldan geti sofið þar á sama tíma.


 Staðfast og heimakært nautið kýs rúm sem kallar á það í hvert sinn sem það kemur heim eftir erfiðan dag því þegar því líður vel,er fullnægt og útsofið, gefur það sig af líkama og sál! - HVERNIG ERTU Í RÚMINU?

Naut (20.apríl - 20.maí)

- ÁKAFT Í RÚMINU -

Nautið þarf þægilegt rúm þar sem það nær að hvíla sig þegar svefninn kallar. Þolinmóður elskhugi endurspeglar styrk þess og tilfinningalegan stöðugleika í rúminu og ímyndunarafl er alveg óþarft ef nautið er ánægt
með rúmið, sængurverið og ákafan blíðan elskhuga í svefnherberginu. Nautið er rómantískt,viðkvæmt,blítt,fálátt. Það kann að vera feimið í upphafi kynna sökum óöryggis í rúminu en þegar það nýtur sín er ekki aftur snúið og leikurinn getur hafist. Þægindi og ánægja skipta nautið miklu máli og þá eru þægilegir og mjúkir koddar mikilvægir. Staðfast og heimakært nautið kýs rúm sem kallar á það í hvert sinn sem það kemur heim eftir erfiðan dag því þegar því líður vel,er fullnægt og útsofið, gefur það sig af líkama og sál.


 Flott damansk silki sængurverasett er eitthvað sem kveikir í ljóninu en það getur líka verið ákaflega kröfuhart við elskhuga sinn og það er örlátt! - HVERNIG ERTU Í RÚMINU?

Ljón(23.júlí - 22.ágúst)

- ÓMÓTSTÆÐILEGT Í RÚMINU -

Stærsta vandamál ljónsins er óraunhæfar væntingar í rúminu. Með skjalli er hinsvegar mjög auðvelt að fá ljónið til að gera nánast hvað sem er. Það vill hart risastórt rúm og kýs helst að hvílast, hamast, lesa og borða í
rúminu allan sólahringinn. Flott damansk silki sængurverasett er eitthvað sem kveikir í ljóninu en það getur líka verið ákaflega kröfuhart við elskhuga sinn og það er örlátt. Það sefur með sængina á milli læranna þegar það hvílist en í vöku leitast það við að prófa sig áfram í rúminu og þá er sængin aukaatriði. Svo fremi sem því finnst það vera elskað og eftirsótt þá er það nokkuð öruggt í rúminu.


 Krabbinn vill sökkva með elskhuga sínum inn í nóttina áhyggjulaus og frjáls í þægilegu umhverfi! - HVERNIG ERTU Í RÚMINU?

Krabbi(22.júní - 22.júlí)

- KYNÞOKKAFULLUR Í RÚMINU -

Krabbinn er feiminn en hefur áberandi ríka kynhvöt. Kynlíf er krabbanum kjarni lífsins. Tal hans,lykt, matargerð og bros geisla af kynþokka alla ævi og hann er einstaklega næmur, þolir ekki að láta sér leiðast og hefur
óbeit á uppgerð í rúminu. Hart rúm stuðar krabbann því í rúminu vill hann sofa, elskast, lesa, snertast og matast ef því er að skipta og þess vegna er mikilvægt að sængin sé stór og rúmið að sama skapi. Krabbinn vill sökkva með elskhuga sínum inn í nóttina áhyggjulaus og frjáls í þægilegu umhverfi.


 Hrúturinn er kröfuharður í rúminu og fyrir honum er það orustuvöllur til að elska, leika og njóta! - HVERNIG ERTU Í RÚMINU?

Hrútur(21.mars - 19.apríl)

-KRÖFUHARÐUR Í RÚMINU-

Hrúturinn er hrifinn af silkisængurveri því mýkt rúmfatanna eflir hvatir hans þegar hann ákveður að nálgast kynlífið eins og allt annað í lífinu: hvatvís og kappsfullur. Hann er opinn fyrir öllu en elskhugi hans ætti ekki að spyrja hrútinn um morgundaginn því hann er ekki fyrir kynferðislega einokun. Í rúminu er hrúturinn rómantískur, ástríðufullur og
lostafullur og veit ekkert betra en að kela ákaft og lostafullt við ástvin í nýbúnu og hreinu rúmi og ekki spillir fyrir ef hann er nýkominn úr sturtu. Hrúturinn er kröfuharður í rúminu og fyrir honum er það orustuvöllur til að elska, leika og njóta



 Fiskurinn vill að kynlífið sé skemmtilegt, margslungið og tilbreytingaríkt því kynlífið er könnunarferð í huga fisksins! - HVERNIG ERTU Í RÚMINU?

Fiskur(19.feb - 20.mars)

-DULARFULLUR Í RÚMINU-

Fiskurinn er stórkostlegur elskhugi svo lengi sem honum finnst hann vera verndaður tilfinningalega og elskaður án skilyrða. Vandræðin hljótast eingöngu ef fiskurinn fær ekki afnot af eigin sæng eða kodda. Fiskurinn er dularfullur og rómantískur í rúminu þegar kemur að ástaleikjum en hann eyðir frítíma sínum oftar en ekki í dagdrauma. Hann eyðir gjarnan tíma sínum upp í rúmi við lestur góðra bókar og þá kemur mjúkt stórt rúm að góðum notum. Hann er gæddur mjúkum, rafmögnuðum ákafa og nýtur þess að kúra með elskhuga sínum daglangt í mjúku rúmi. Fiskurinn vill að kynlífið sé skemmtilegt, margslungið og tilbreytingaríkt því kynlífið er könnunarferð í huga fisksins.


 Vatnsberinn tekur lítið pláss þegar hann þarf að deila rúminu með öðrum en hann þarf fyrst og fremst þolinmóðan, skilingsríkan og hlýjan bólfélaga! - HVERNIG ERTU Í RÚMINU?

Vatnsberi(20.jan - 18.feb)

- HÓGVÆR Í RÚMINU -

Vatnsberinn tekur lítið pláss þegar hann þarf að deila rúminu með öðrum en hann þarf fyrst og fremst þolinmóðan, skilingsríkan og hlýjan bólfélaga. Vatnsberinn er ekki latur en hann nýtur þess að eyða frídögum upp í rúmi og getur verið nánast allt með elskhuga sínum; jafningi, ástmaður, kennari, einlægur vinur og sérstaklega góður bólfélagi. Hógværð hans er
heillandi í rúminu en fæstir komast í gegnum skelina í upphafi til að kynnast honum náið. Vatnsberinn á erfitt með að vera opinnn og óheftur í rúminu því hann er svolítið tilbaka í persónulegum samskiptum.



Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Why I’m watching the summer olympics Funny Images, How to answer every True or False quiz Funny Images, Always makes my morning pee a tad more delightful. Funny Images, I wonder how the boss will take it… Funny Images, BukCookie Funny Images, Fun With Perspective